Miðfjörður á Langanesströnd

Íslenskur æðardúnn

Íslensk hlýja frá kynslóð til kynslóðar

Á jörðinni Miðfirði er eitt mesta æðarvarp landsins. Æðardúnn hefur verið nýttur sem hlunnindi á jörðinni um aldir — og hér er hann enn tíndur í höndunum, hreiður fyrir hreiður.

  • 100%náttúruafurð
  • 100%lífræn framleiðsla
  • 100%gæði
Merki Æðarbóls sf. — æðarkolla, hreiður og slagorðið Íslensk hlýja frá kynslóð til kynslóðar

Um okkur

Jörðin Miðfjörður

Ræktun æðarfugls í Miðfirði hófst um miðja síðustu öld sem tilraun ábúenda til að auka hlunnindi á jörðinni við annars harðbýlar aðstæður. Æðarfuglinn er hánorrænn fugl og því tilvalið að rækta hann við nyrsta haf. Varpið hefur vaxið ár frá ári og mikil vinna verið lögð í að stækka það og viðhalda því.

Miðfjörður er stór jörð í Skeggjastaðahreppi hinum forna, sem nú tilheyrir Langanesbyggð. Jörðin liggur milli tveggja laxveiðiáa, Miðfjarðarár og Hölknár í Bakkafirði, og búskapur hefur verið þar um árhundruð. Í Miðfjarðará veiðast um 200–300 laxar árlega og í landi jarðarinnar er stunduð rjúpna- og gæsaveiði á veiðitímabilum.

Jörðin Miðfjörður á Langanesströnd — tún, bæjarhús og hafið
Jörðin Miðfjörður á Langanesströnd

Æðardúnninn

Náttúrulegt undraefni

Íslenskur æðardúnn er verðmæt og fágæt náttúruafurð — eftirsótt fylling í dúnvörur fyrir þá kröfuhörðustu vegna einstakra eiginleika sinna: mýktar, léttleika og mikils einangrunargildis. Eiginleikarnir eru einstakir því dúnninn er þakinn örfínum, vart sjáanlegum, mjúkum króklaga þráðum sem valda samloðun hans. Hann er loftmikill, sem veldur undraverðum léttleika, háu einangrunargildi og góðri öndun.

3.000 kg á ári

Árlega falla til um 3.000 kg af hreinsuðum íslenskum æðardúni. Framboðið er háð náttúrulegum skilyrðum ár hvert.

60–80 hreiður í kílóið

Hvert kíló af hreinsuðum dún samanstendur af dúni úr 60–80 hreiðrum — hver sæng er afrakstur heils varps.

Lög nr. 52/2005

Allur æðardúnn er metinn og veginn af lögskipuðum dúnmatsmönnum eftir fullhreinsun og vottorð innsiglað við vöruna.

Við gæðamat er hreinleiki dúnsins, lykt, litur og samloðun metin og þyngd staðfest — óheimilt er að dreifa dún, innanlands eða erlendis, án slíkrar vottunar. Hvergi í framleiðsluferlinu er nauðsynlegt að nota tilbúin efni af nokkru tagi og engu er blandað saman við dúninn: 100% lífrænt ræktuð náttúruafurð.

Æðarbliki og æðarkolla saman við hreiður
Æðarfuglar á flugi yfir varpinu
Æðarfuglar á leið á haf út með unga að varpi loknu
Egg í hreiðri fóðruðu æðardún

Æðarfuglinn

Vinátta byggð á trausti

Æðarfugl, eða æður (Somateria mollissima), er stór sjóönd sem verpir á norðurslóðum. Villtur fuglinn hefur lært að bændur veita honum vernd fyrir rándýrum — margir þeirra standa vakt um æðarvarpið allan sólarhringinn á varptíma.

Í staðinn skilur kollan eftir dúninn sem hún reitir af sér til að halda hlýju á eggjunum, en einangrunargildi hans er slíkt að eggin haldast heit þótt hún bregði sér frá.

Íslenski æðarfuglinn og æðarbændur hafa þróað einstakt samband sín á milli, byggt á vináttu og gagnkvæmu trausti.

Vinnsluferlið

Frá hreiðri í hendur — eitt sumar í Miðfirði

  1. Maí

    Fuglinn sest upp

    Æðarfuglinn hópar sig undan ströndinni í byrjun maí og um miðjan mánuð færir hann sig inn á land. Hreiðurgerð hefst, kollur og blikar para sig og kollan reitir af sér dún til að verma eggin.

  2. Júní

    Tínt jafnóðum

    Dúnninn er handtíndur allt sumarið og þess gætt að taka aldrei allan dún af fuglinum. Ungarnir byrja að skríða úr eggjum í byrjun júní — þá þarf einnig að tína eggjaskurn úr dúninum.

  3. Júlí

    Varpi lýkur

    Varpinu er mikið til lokið fyrri hluta júlí. Hafa þarf hraðar hendur við að tína dún úr yfirgefnum hreiðrum svo hann fjúki hvorki né rigni niður.

  4. Haust

    Grófhreinsun og þurrkun

    Gras, mosi, eggjaskeljar og þari eru fjarlægð og dúnninn þurrkaður — vinna sem stendur stundum fram á haust.

  5. Fullhreinsun

    100 °C og handtínsla

    Sérstakar vélar fullhreinsa dúninn og hann er hitaður í 100 °C. Allar fjaðrir eru handtíndar úr. Hvergi í ferlinu er notast við tilbúin efni og engu blandað saman við dúninn — hrein, lífrænt ræktuð náttúruafurð.

Hreiður með eggjum, fóðrað æðardún
Hreiður fóðrað æðardún
Grófhreinsaður æðardúnn í þurrkun
Dúnninn í þurrkun eftir grófhreinsun

Vörur

Sængur og hreinsaður dúnn

Æðardúnssængur

Æðarból sf. lætur sauma dúnsængur eftir pöntunum viðskiptavina, í samstarfi við aðila með mikla reynslu og þekkingu á framleiðslu æðardúnsvara.

Algengt er að um 1 kg af dún fari í sæng af stærðinni 140×200 cm.

200×220140×220140×200100×14080×100

Allar stærðir í cm — aðrar stærðir eftir samkomulagi.

Hreinsaður æðardúnn

Allur dúnn sem ekki fer í sængur eða aðrar vörur er seldur erlendis. Helstu viðskiptalönd eru Þýskaland og Japan.

Hægt er að kaupa fullhreinsaðan æðardún beint af félaginu, allt niður í hálft kíló.

Hafðu samband til að fá verð og afgreiðslutíma.

Friðlýst æðarvarp

Æðarvarpið í Miðfirði er friðlýst skv. reglugerð nr. 252/1996, sbr. auglýsingu í Lögbirtingablaðinu frá 21. mars 2019. Friðlýsingin gildir 15. apríl – 14. júlí ár hvert og felur í sér að:

  • Öll skot eru bönnuð innan 2 km frá æðarvarpi, nema brýna nauðsyn beri til.
  • Ekki má leggja net í sjó nær varpinu en 250 m frá stórstraumsfjörumáli, nema með leyfi varpeiganda.
  • Öll óviðkomandi umferð og röskun er bönnuð, nema með leyfi varpeiganda.
  • Allur óþarfa hávaði af völdum manna og véla er bannaður, nema með leyfi varpeiganda.

Hafa samband

Áhugi á æðardún?

Hafir þú áhuga á að versla æðardún eða vörur framleiddar með æðardún, sendu okkur línu — við svörum öllum fyrirspurnum.

Miðfjörður, Langanesbyggð — sjá á korti